Börn voru spurð útí ástina. Hérna er það sem þau sögðu eða
svöruðu um hana.
Algjört æðiii... Mér finnst Sniiild hvað
krakkar svara. Alltaf svo einfalt hjá þeim


Enjoy lovers 
"Þegar maður verður
skotin í ástfanginn, þá er það rosalega sárt og maður getur meitt
sig alveg fullt."
"Ég veit ekki alveg hvers vegna það
eru svona margir ástfangnir,
en ég held það sé vegna þess að konur eru með ilmvatn og karlar
rakspíra
og það er þá líklega vegna þess að þau ilma svo vel. Þess vegna
seljast ilmvötn svo mikið.
Mamma kaupir alltaf fullt þegar hún fer til útlanda og oftast
fyrir pabba."
-Siggi 8. ára.
"Ég hef heyrt að
ástin og að verða ástfanginn sé það mikilvægasta í
heiminum,
en það er líka
mikilvægt að Manchester United gangi vel!"
-Friðrik 8. ára.
"Strax á eftir þegar ég er búinn í leikskólanum ætla ég að finna
mér konu."
-Tómas 5 ára.
"Mér finnst voða
gaman að horfa á ástina, bara ekki á meðan Birta
og Bárður eru. Ég vil frekar horfa á þau."
-Helga 7. ára.
"Fyrst þegar kærustupar ferð út
saman þá skrökva
þau alveg fullt að hvort örðu, en samt fara þau út aftur...og
verða kannski hjón?"
-Finnur 10. ára.
"Ég er með svolítið margar freknur, svo að konan mín
verður að hafa freknur líka."
-Andri 6. ára.
"mamma sagði að ég ætti að velja
mér mann sem væri
blaður og myndarlegur."
-Katrín 8. ára.
"Æ, hættu að spyrja
mig að þessu með ástina, ég fæ hausverk...
ég bara krakki og ég þarf enga ástina."
-Ragnar 7 ára.
"Ég ætla sko ekkert að flýta mér að verða ástfanginn.
Það er alveg nógu erfitt að vera í skólanum."
-Regína 10.ára.
"Mamma segir að karlmenn séu heilalausir. Hún er búin að
reyna að finna marga sem eru með heila en það gengur illa."
-Agnes 10. ára.
"Maður og kona lofa að fara í
gegnum allt saman, líka Hvalfjarðagöngin."
-Ómar 7. ára.
"Ég ætla sko ekki
að eignast börn! Eða jú kannski? En ekki að skipta um
bleyjur! Ég myndi bara hringja í mömmu og bjóða henni í kaffi
til að fá hana til að skipta um bleyjur."
-Kristín 10. ára
"Ástin er mjög asnaleg...en ég held
ég verði
samt að prófa hana?"
-Sigrún 9. ára.
"Ástin finnur mann sko alltaf... jafnvel þótt þú reynir að fela
þig. Ég hef reynt að fela mig oft, oft, en alltaf finna stelpurnar
mig og verða skotnar í mér."
-Davíð 8.
ára.
en já allarvegana ég er að fara í fjarnám á næstu
önn. Þið verðið að vera duglegar að hitta mig samt stelpur mínar.
Riiight??

Og hvað er planið fyrir næstu helgi? Ekkert að
ske
Hihi
...............................................................
Birgitta sykurpúði
....
-Magnús 7. ára.